Steina
@steina
Er farin að spíra 🌿 Það er ekki til neitt sem heitir Steinamín, bara steinefni og vítamín. Því sjá, ég boða yður hóflegan fögnuð, talsverð vonbrigði og ofgnótt af eymd ✨
Já áhugavert, skruppu Blikar í útsýnisflug í leikhléinu sýnu? Og hvers vegna er verktaki að fylgjast með ferðum þeirra?
Maður er mans gaman því við konur og kvár vitum fátt betra en hlæja aðeins að körlunum í kringum okkur 🫰
Röggi fór í göngutúr í gær og kom heim gegnsósa svo hann hengdi úlpuna upp í sturtunni og ég held alltaf í svona kvartsekúndu að það sé einhver að fela sig í sturtunni okkar þegar ég sest hérna 🤦♀️
Þú sem ert á jörðu eftir Nínu Ólafsdóttur. Fokk. Vá. Er orðlaus. Og blaut í andlitinu. Fokk. ⭐ ⭐ ⭐ ⭐ ⭐
Getum við haft bréfin svolítið í stíl við fræðsluefni umferðaskólans nema bara fyrir vændiskaup og upplýsingar um öruggt kynlíf og eitthvað í þeim dúr? 1. Kári kaupir vændi 2. Baldur kynnist blæti 3. Hemmi fer á húð og kyn
Ég var að borða á mínum allra besta uppáhalds matarvagni 🤤 Giskið hvar á landinu bestu tacoin fást 👇
Gott er að vera þolinmæði, best er að vera þolinmæðari ✨ bara á meðan man verður ekki móður 😮💨 nú eða móðir 🤱
Var að fá fjölbreytt og ýtarlegt fréttabréf frá Cornell Lab of Ornithology og ég skil ekkert en er samt svo innilega heilluð, er þetta frábær hrekkur eða er ég miðaldra búin að skrá mig óvart í eitthvað dæmi í einu af fjölmörgum dottandi skrollunum mínum??
Ég skil ekki hvers vegna þær breytast alltaf þegar man skoðar önnur merki og fer svo aftur á það sem man byrjaði á 🤷♀️
Vá ég held að ég skilji alls ekki þennan leik nógu vel 😵💫 en takk, komin með þetta 🙏 Random mynd til að útskýra í alt án þess að spoila
Nei en þetta er skráð sem sami artisti og er í soundtrackinu af Chicago, svo er líka "ný plata" með "Muse" skráð á hljómsveitina Muse sem er klárlega líka eitthvað bull 🤷♀️ ég skil bara ekki hvað er í gangi, finnst þetta mjög shady af Tidal.
Ég skil ekkert, er leikkonan Catherine Zeta-Jones í alvöru að gefa út tónlist eða er þetta eitthvað rugl?? Finn ekkert nema gervigreindarbull svör á Google 🤷♀️
Megið skrifa kveðjurnar til mín hér beint fyrir neðan, kv uppáhalds skýjabollan ykkar 💕
Þegar man sturtar akkúrat réttu magni af lyfjum í lófann á sér í fyrstu tilraun ✨
Af hverju er ég að sjá þetta fyrir mér svona? The Legend of Springsteení: Miniature útgáfa af bandi að spila ofan í skókassa 🤏
Afsagnir þingmanna ættu að vera miiiiiiklu algengari!! www.visir.is/g/2026282987...