asdiso
@asdiso
Snorklstelpan
Þessi hoya var búin að leggja undir sig hillustoð sem var við hliðina á henni og ég ákvað að reyna að losa hana og gefa henni skemmtilegri stoð til að vaxa í. Hún er komin í ca 150 cm, lengstu angalengjurnar. Og þetta byrjaði sem pínulítill afleggjari fyrir ca 4 árum. Hún óx ekkert lengi, svo bara 💥
Nýjasta auglýsingin sem ég fékk á fb er hilarious. Í stuttu máli gengur hún út á að sannfæra konur um að þær þurfi að fróa sér oftar í stað þess að leita annarra leiða til að losa um stress hjá sér. Gæti reyndar ekki verið meira sammála, en ég er ekki alveg markhópurinn kannski 😂
Við bröltararnir höfum það drullufínt í Ólafsfjarðarmúlanum, sem býður upp á alls konar skriður og snjóskafla í miklum bratta til að príla yfir. Knús og kreist ❤️
Svona fyrst ég er byrjuð að rifja upp gamla hardware takta, þá er ég núna að harvesta wifi dótið úr tölvu sem er dauð til að koma í mína vinnutölvu.