Egill Harðar
@egillhardar
Vefhönnuður og alæta á tónlist. Pabbabrandari í mannslíki. Heiftarlega miðaldra / Web designer and musical omnivore. Dad joke in human form. Devastatingly middle aged. Brain farts will appear sporadically in English and Icelandic.
...and the award for most impressive celebrity at The World Cup goes to Javier Bardem.
Argentine goalscorer Alexis MacAllister has a brother. I'll give you zero guesses what his brother's name is.
Ef tilkoma Trump hefur aukið uppgang popúlista um allan heim er vonandi að mögulegur sigur Count Binface á Nigel Farage verði vinstri öflum og heilbrigðu fólki í framboði vindur í segl.
Heimsótti Ítalíu og Króatíu í fyrra og á báðum stöðum mæltu heimamenn með þessari tegund. Virkaði vel þó auðvitað hafi eitt og eitt bit komið.
Íslenskt sumar! Og ég sem er fastur í vinnunni þegar ég gæti verið að norpast veðurbarinn einhversstaðar í náttúrunni.
Mig langar sjúklega að vita hvort þetta hljómar jafn skelfilega og það gerði hjá Viggó í bókunum.
Þó rúm tuttugu ár séu liðin þá hef ég enn ekki náð að jafna mig á því að Peter Parker hafi valið Mary Jane umfram Úrsúlu Ditkovich. Hún hefði verið fullkomin fyrir þig Pétur! FULLKOMIN!!!
Er á Night & Day Lodge í Borgarfirði. Mæli með. Mjög kósý og rómó fyrir tvo. Stutt í Húsafell og Kraumu.
"These Nuts May Contain Traces of Plastic" er auglýsingaherferð frá dönsku samtökunum Plastic Change en þau eru þekkt fyrir ögrandi herferðir sínar.
Myndi vilja sjá þetta icon á öllum miðlum til þess að koma böndum á gervigreindar viðbjóðinn sem vellur yfir allt og hjálpa notendum að greina á milli hvað er AI drulla og hvað ekki. Ef nógu margir smella á icon-ið er myndin, myndbandið eða færslan sjálfkrafa fjarlægð.
Í ellinni ætla ég að breyta garðinum í baðlón fyrir capybara hjörðina mína og liggja svo með þeim daglangt í pottinum með kokteila og vindla.
Maðurinn lítur út eins og hann sé að losa sig við heiftarlegt harðlífi um leið og hann kynnir þessi ósköp.
Ég er alvarlega að hugsa um að fjárfesta í verkum eftir Ed Fairburn : edfairburn.com