Erlendur
@erlendur
Reiknifræðingur og áhugamaður um ýmis málefni // erlendur á twitter.com, bsky.social, og facebook.com
Það var fínt veður í dag inn í miðjum Elliðaárdal. Sól og sumar. Rigning þess utan.
Ég veit ekki hver bað um þessar brýr allar en það var allavega ekki hjólreiðafólk. Engu að síður rataði þetta í reykjavik.is/frettir/2025.... Væri nær að verja fjármununum í það sem hjólreiðafólk raunverulega bað um. Eða reyna ekki að réttlæta þetta með því að vísa til hjólreiðafólks.
Sumarmál á Rás 1 eftir smá stund; ég get lofað því að ég verð einungis með umdeildar skoðanir.
Söguleg atkvæðagreiðsla í fulltrúadeild Bandaríkjaþings! Deildin samþykkti að leggja niður klukkuhringl og velja varanlegan SUMARtíma sem tímaviðmið í Bandaríkjunum!!! Hér fylgja Bandaríkjamenn í fótspor Íslendinga en tíminn á Íslandi síðan 1968 er sumartími.
Þegar pabbi dó í vor seldum við traktorinn sem hann hafði bardúsað í um árabil. Fengum senda mynd af honum í gær við vinnu.
Ég er þessa dagana með Apple Mac mini M4 annars vegar og Lenovo ThinkPad X9 Aura hins vegar. Mac mini er snilldarvél en stýrikerfið not so much. Það hefur verið miklu þægilegra í gegnum tíðina að nota hugbúnað á Windows og líka fídusa eins og Storage Spaces.
Kr. 1.490,- fyrir „þjónustu“? Þetta gerist all rafrænt; bílnum er keyrt inn og keyrt út, myndavélar skanna númerið, mér sem eiganda er flett upp og reikningur sendur í heimabankann. Það er enginn 1,5k kostnaður hérna. Taka til! www.ruv.is/frettir/innl...
Tökur snemma morguns með lögreglunni í jaðri höfuðborgarsvæðisins, með nokkra muni úr árveknisvitundarvakningunni „Gul hjól“.
Auðvitað hef ég áhuga á þessum pósti, Instagram! Þetta er minn eigin póstur!!!
Í staðinn þarf eitthvað fullkomlega grotesque eins og þetta, og dugar jafnvel ekki til fyrir suma.
Vandamálið við fólk (eitt af mörgum) er að það þarf raunverulega að útskýra fyrir því að það eigi ekki að leggja við hlið stæðis fyrir fatlaða og fyrir framan hjólastæði á hellulögðu yfirborði þegar bílastæðið er almennt malbikað. Þetta er alltof óljósar vísbendingar fyrir meðalmanninn.
Þetta eru Norðfjarðargöngin, hérna eru hestar og gangandi bönnuð. Það virðist vera eitthvað "pick 2 out of 3" dæmi hérna í gangi.
Nei, ég skil einmitt ekki hvers vegna það er bannað að hjóla í þeim göngum. Þau liggja upp á við. Og það má labba í gegnum þau?
EVE Fanfest 2026 er lokið. Ný ævintýri með nýjum eigendum og Google DeepMind á næsta ári.
Þetta er fremur normið; forsetar Íslands koma ætíð á EVE Fanfest. Á sviðinu eru einnig forstjóri Fenris Creations (áður CCP Games) og Adrian Bolton frá Google DeepMind.
Við skulum endilega hætta við Borgarlínu og endurskoða samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og halda áfram að fresta öllum úrbótum.
Ég ákvað að halda nákvæmlega utan um þetta í smátíma, sjá hvort að ég fengi árgjaldið tilbaka (ég er með fullt af Orkustöðvum í næsta nágrenni og á venjulegum leiðum; á ekki oft erindi út í Kauptún). Þetta eru smápeningar í hvert skipti. /1