Simmix1
@simmix1
The impact of propaganda and politics. Glóbalisti. Í feminísku rétttrúnaðarkirkjunni. Ég tek ekki umræðuna og nota block án þess að hika. I block bots and trolls.
Eitt það besta við Evrópu er allt fólkið sem hefur flutt þangað og kynnir okkur það besta af heimaslóðum í bland við Evrópu. Lychee spritz reyndist geggjað gott stuff
Verkfræðingur skrifar grein: "Það er alveg á hreinu að innganga í ESB færir íslenskum heimilum ekki sjálfkrafalægri heildarútgjöld, því þrátt fyrir að vextir gætu á einhverjum tíma lækkað myndi annar fastur kostnaður að öllum líkindum hækka." Öh... afhverju ætti hann að hækka við ESB aðild?
Okkar íslenska MGT, Diljá Mist Einarsdóttir, sem ekki er gyðingur, hefur áhyggjur af því hvernig fólk tjáir sig á samfélagsmiðlum. En bara um einn hóp. Allt í góðu með að drulla yfir fólk sem býr annars staðar í Miðausturlöndum og sérstaklega ef það er brúnt...
Eins og hefð er fyrir á þriðjudögum bullar HJG um ESB í Morgunblaðinu. Aðlögun að regluverki ESB hófst með EES og það er sáralítið eftir. En já í ágúst er ekki já við aðild. Ekki frekar en þegar Noregur fór í það ferli.
Ein af rökleysum andstæðinga aðildar að ESB er að hún myndi hafa neikvæð áhrif á inn- og útflutning okkar. Sömu rökin voru notuð gegn EFTA aðild Íslands. Er einhver í dag að velta því fyrir sér að við hættum í EFTA? Til að bæta viðskiptahagsmuni okkar á alþjóðavísu?
Það er svo dásamlegt að skoða umræðuna frá því þegar Ísland gekk í EFTA. Hún er svo lík því sem nú gerist um ESB. Gengur út á að útlendingar séu hættulegir Íslandi og verði vondir við okkur. Langar einhvern að snúa til baka til þessa tíma?
Tímarit.is er dásamleg uppspretta upplýsinga um liðna tíma. Þar fann ég t.d. þessa dásamlegu grein eftir ÓRG og dæmi nú hver fyrir sig, hvort hann hafi reynst sannspár. Það sem hann kallar "þekkingarkynslóð" er betur þekkt sem kynslóðin sem setti Ísland í þrot 2008... timarit.is/page/3333733...
Húsnæðismálin eru áhugaverð í þessu samhengi. 2010 var Ísland undir meðaltali í ESB, en erum nú langt yfir - og hlutfallslega hækkunin er rosaleg hjá okkur.
Kannski tengist þetta eitthvað vöxtum á Möltu. En á Íslandi eru þeir að jafnaði mun hærri en á Möltu. Það er miklu dýrara að skulda á Íslandi. Ég veit ekki með ykkur. En mögulega gæti það veri geggjað að ná sama árangri og Malta með því að ganga í ESB?
Ég ákvað að skoða Möltu. Eyja í Miðjarðarhafi. Mun minni en Ísland (316 km2) og ekki eins rík. En þar búa tæplega 600 þúsund í níunda þéttbýlasta landi heims og þeim virðist bara ganga ágætlega. Þrátt fyrir að vera í ESB. Oftast með meiri hagvöxt en við.
Ég hef lengi notað ákveðna samlíkingu varðandi möguleika Íslands í alþjóðakerfinu. Við getum valið að skipa okkur í lið, eða spilað einleik á vellinum...
Áróðursrit ESB andstæðinga er í frídreifingu í dag. "Konráð S. Guðjónsson er að baki Kontext. Hann er sjálfstæður ráðgjafi hjá Kontext ehf. en fyrrum efnahagsráðgjafi ríkissjórnarinnar og aðstoðarmaður fjármálaráðherra. Áður hagfræðingur hjá Viðskiptaráði, Stefni, SA og Arion banka og margt fleira."
Hófstilt umræða einkennir málflutning andstæðinga aðildar að ESB. Tilefnið var nýtt svar á Evrópuvefnum sem snýr að margumræddu fullveldisafsali í tengslum við aðild að ESB.
Ekki orð um ástæðu. Þetta er hins vegar skýrt merki um þær loftslagsbreytingar sem eru af mannavöldum.
Þessi hafði rangt fyrir sér þegar hann barðist fyrir útgöngu Breta úr ESB og hann hefur rangt fyrir sér þegar hann berst fyrir útgöngu Íslands úr EES og gegn inngöngu okkar í ESB. Mun aldrei viðurkenna að Brexit hafi verið mistök...
Afhverju hefur húsnæðisverð hækkað miklu hraðar á Íslandi, en í Evrópu? Ísland og Eistland skera sig úr þegar þróunin frá 2010 er skoðuð. Og hvaða flokkur var aftur að stýra efnahagsmálum á Íslandi á þessu tímabili? Treystir þú þeim þegar kemur að ESB aðild?
Hver kemur með búsið fyrir börnin þín? Högum finnst sjálfsagt að það geti verið hvaða vitleysingur sem er, því Wolt leyfir hverjum sem er að vinna fyrir sig (því þau eru bara með verktaka í vinnu). Það er eflaust ekkert um "auka sölu" meðfram bús afhendingu...
Bosch why have you eliminate us? We are only just over 400 thousand, but you may have heard of us...
Er kaupmáttur á Íslandi út úr korti miðað við Evrópu? Ekki segja raungögn. Mun hærri í Noregi og Danmörku...
Sögulega er verðbólga áhrifavaldur á launafólk og það er líklega oftast þannig að það er að bregðast við, en er ekki orsök...
Beint ofan í djúpu. Verðbólgu umræða snemma morguns. Hvort kemur á undan, launa- eða verðhækkanir.
Þá hét það EFTA, nú er það ESB, en rökin eru meira og minni samhljóða. Hefur það reynst okkur böl að hafa gengið í EFTA? Rökin frá 1969 virðast þó gagnast Morgunblaðinu vel...
Fengið að láni frá Pawel Bartoszek "Ég veit ekki hvort alli átti sig á í ljósi umræðu um "sigurvegara" kosninga að í sveitarfélögum sem bæði Viðreisn og Miðflokkur voru á kjörseðlinum þá fékk Viðreisn örlítið fleiri atkvæði en Miðflokkurinn."
Hér er önnur mynd. Sama heimild (Eurostat) og líka febrúar 2026. Hér væru sjónrænu skilaboðin þau að miklu minna atvinnuleysi er í ESB og því kannski frábær hugmynd að ganga í ESB ef við viljum tryggja hátt atvinnustig. Morgunblaðið stundar áróður, ekki fréttaflutning.
Morgunblaðið reynir ekki að vera óhlutdrægt þegar kemur að umfjöllun um ESB. Eitt stef sem oft er endurtekið er að atvinnuleysi sé svo miklu meira í ESB en á Íslandi. Hér má sjá mynd þar sem ýtt er undir þessa hugmynd. En ef meðaltal ESB er ekki nema 5,9% þá eru þessi lönd ekki valin af handahófi.
Við vorum hress um miðja sjöu. Bullandi verðbólga, samdráttur og engin bjór. En það er rétt að rifja þetta upp, því við stefnum hratt inn í sambærilegt efnahagsástand vegna Iran Fiasco Trump...