Anna Björg
@annabk
Ein miðaldra hvítvínskella í Danmörku. Prjónar, eldar og rífur kjaft (þegar þess þarf) Rushed, sloppy, irritated and alive.
Hversu mörgum viðskiptum ætli þessir tapi fyrir svona svakalega lélega málnotkun? 🤔
Rétt tæplega litli fingurinn á mér að lengd. Það sem ég hefði stokkið upp, öskrað og panikkað fyrir nokkrum árum... #Lífiðísveitinni
Svona var þetta í sveitinni. Tekið í gegnum logsuðugler á krappí Samsung síma. #sólmyrkvi26
Það er túnbaun í matinn; einfalt go-to þegar heimilisfólk er of upptekið til að elda: Túnfiskur, svartbaunir og smátt skorið grænmeti, lime og msg/aromat fyrir úmpf. Borðað í vefju með dressingu að eigin vali, í kvöld er það jalapeño/lime. #Verðykkuraðgóðu #matarský
Þótt ég hafi búið í Danmörku í bráðum 17 ár (á fimmtudaginn, aksjúallí!) þá rekst ég ennþá á orðalag sem mér finnst merkilegt. Hvað eru t.d. 'um það bil þrjár handfyllir af nemendum' eiginlega margir nemendur?? 🤔
Það er kannski fínt að ég eigi ekki börn, ég væri alltaf 'we have KFC at home'-mamman 🤷🏼♀️
Þessi pláneta er svo geggjuð, vélin tók á loft í sólsetri, svo verður bara bjartara og bjartara eftir því sem við nálgumst Ísland.
Sumt fólk: Hva, það er ekkert að því að kaupa belju í Ríkinu og eiga í ísskápnum 🤷🏼♀️ Beljan í ísskápnum:
Ég uppgötvaði sumsé að sniðið er ekki minna mikilvægt en stærðin og hef bara keypt balconette/full cup í nokkur ár. Það var samt vesen með stærðir á milli merkja svo þegar ég fann sæmilega ódýrt merki sem mér fannst þægilegt (Zizzi, fæst í Curvy) ákvað ég að halda mig bara við það 👍
Allir dagar sem færa nýtt spil inn á heimilið eru góðir dagar. Í dag voru þau þrjú svo þessi var extra góður!!! (Það koma gestir á morgun sem eru ekki spilanördar svo við vildum eiga eitthvað 'almennt' til að bjóða þeim upp á)
Mæli algjörlega með, þarna var ég búin að príla ég veit ekki hvað margar tröppur í sirka sjöhundruð stiga hita (eða sko, rúmlega 30 en feels like...) og þetta bjargaði mér alveg!
Sko, búin að borða góðan mat, drekka gott vín og kokteila, spila drag-júróvisjón-bingó og komin heim klukkan hálf tíu. Geri aðrir betur!!! (Nei, við horfum ekki á keppnina sjálfa)
Miðaldra mode unlocked: Borð á veitingastað kl 16. Lest heim áætluð kl 20.39. Þynnka áætluð: engin.
Ég vinn í geira sem er að þjálfa gg til að tortíma sjálfum sér (þýðingar) svo ég hef fengið alls konar beiðnir um að taka þjálfunarverkefni og get staðfest að þau eru ekki góð... Annars er greinin svona hjá mér: