Björn Kr. Bragason
@bjolli
Músíkant og matvælafræðingur með heilbrigðisfulltrúaréttindi. Gæðastjóri hjá Freyju og Ali. Gítarleikari hjá Lister. Frontmaður hjá TBK Group. Finnst gott að fá ananas. linktr.ee/triobjollaklikk
Mættur á System of a Down í My Chem bolnum frá þriðja kvöldinu, skv rútínu. Sýnist hin hefðin koma til með að rofna, það virðist ekki hafa hvarflað að neinum að setja upp merch bás á 5. hæð og sénsinn að ég nenni aftur niður og upp alla þessa stiga fyrir einn bol. Oh well, það sparaði mér 40 pund 🤷♂️
Útsýnið í kvöld. Þrennir tónleikar, þrjú ólík útsýni, svona fyrst það var option
Það bættist í safnið í gær. Þessi er ekki bara með vanþóknunarsvip, hann ætlar að hjóla í mig.
Þetta er hún. Þetta er G-nótan (sem er reyndar F# af því að Gerard Way er að verða gamall, en það er önnur saga).
Heitt og sveitt og hávært, eins og góðum tónleikum sæmir. Ekki verra að komast svona nærri B-sviðinu. Get þakkað uppeldinu á unglingnum fyrir það, hún er orðin svakaleg í að finna leiðir til að komast fremst. Setlistinn var nokkuð eftir bókinni og strákarnir í fantaformi.
Felt emo, might delete later. Held í hefðina með að mæta í bolnum frá síðasta giggi og redda réttu dísæni á staðnum.
Sum eru ekki í rónni fyrir þau komast á McDonalds, önnur bara verða að komast að versla í Primark. Mín ómissandi útlanda-lágmenning er af aðeins öðrum toga:
Þú veist þú ert á góðum tónleikum þegar það myndast moshpittir (í fleirtölu) hjá upphitunarbandinu.
Þetta er eiginlega bara orðið að hefð núna, að mæta í bolnum frá síðasta giggi, kaupa nýjan og skipta.
Oops I did it again. Seinni parturinn af Metallica gigginu er víst ekki fyrr en á morgun
80 þúsund manns að öskra "die, die, die" á fjóra gamla kalla. Það er ekki fallega gert. 😥