Heiða
@heida
📍🇮🇸 🏳️🌈🇪🇺🏴☠️ | hún/she | lögfræðingur | áhugakona um veröldina og mismunandi menningarheima
Hvar er bongóið sem mér var lofað í dag? Svo á þetta bara að versna seinni partinn💀 Þurfum við að færa veðurguðunum blóðfórn? Er opin fyrir hugmyndum.
Ef einhver var að velta fyrir sér lítur þetta meira og minna svona út alls staðar 5-6 dögum post-bit. Er með eitt rétt við augað sem ég klóraði mér óvart í og bólgan er búin að færast yfir í augnlokið.😩 Ekki gera eins og ég krakkar og halda að þið verðið ekki bitin, notið allar forvarnirnar.✌🏻
Stundum kemur sér vel að hafa stúderað þjóðarétt. Öll lönd mega handtaka og rétta yfir stríðsglæpamönnum. Blessunarlega. Hins vegar getur borgarstjóri í einhverri random borg ekki gert það, þetta þyrfti að koma frá Trump, sem er aldrei að fara að gerast, enda eru hann og Bíbí best buds.
25 dögum síðar en ég enn bara helsátt með veðrið hérna. Spilar mögulega inn í að hafa fylgst með vinum mínum dösuðum og glansandi sveittum að stikna í Frakklandi sl. viku.🥵
Og það er enn fólk sem trúir ekki á hamfarahlýnun... (Rauðmerktu númerin eru hve margar gráður yfir meðaltali hitastigið er í dag).
Ætla channella mína innri Donnu og pósta random söngtextum: Jag känner en bot, hon heter Anna, Anna heter hon Och hon kan banna, banna dig så hårt Hon röjer upp i våran kanal Jag vill berätta för dig, att jag känner en bot
Eitt það fyndnasta sem ég man úr útlendingagrúppunni á Íslandi var einhver manneskja að spyrja hver væri eiginlega munurinn á hamborgarasósu og kokteilsósu. Ég, Íslendingur (og proud representative af mayo-nation): já sko þú myndir augljóslega ekki nota hamborgarasósu með frönskum😌
Ertu ekki á Ítalíu? Ég keypti svona þegar ég var á Sikiley og er líka mjög ánægð með hana. Ekki svona klísturáferð þó þetta sé krem.
Sardínur úr dós eru vinsæll hádegismatur (eða léttur kvöldmatur) í Frakklandi. Hérna er ég með hrísgrjón, gúrku, radísur, harðsoðið egg og snöggsteiktan aspas með sardínum. Gerði svo dressingu úr safanum úr dósinni, sítrónusafa, sítrónuberki, graslauk, steinselju og Dijon sinnepi.
Nr. 1. Pínu vandró að þetta er eina bókin sem ég hef lesið á árinu (kláraði í maí, gleymdi að posta) en hef þá afsökun að það var shitloads að lesa í náminu. Dúkkuverksmiðjan, e. Júlíu Margréti Einarsdóttur. ⭐️⭐️⭐️⭐️ Fyndin og sorgleg í senn, vel skrifuð og fjölbreytt málfar, frumleg hugmynd. Mæli með!
Við pabbi fundum stílabók frá afa frá 1938 í geymslutiltekt. Þar á meðal var þetta yndislega fallega bréf til langömmu. Hann (‘18 mdl) virðist m.a.s. hafa verið nokkuð vók: meðvitaður um 3. vaktina „Þeim verkum, sem eru unnin í hljóði innan fjögurra veggja veita margir minni athygli en ætti að gera”